Wednesday, June 6, 2012

DIY - Gallaskyrta



Fengum frábæra hugmynd frá honestlywtf að setja gallaskyrtu í klór til þess að fá litarbreytingu í skyrtuna. Prufuðum þetta sjálfar í dag og gekk mjög vel. Frábært að gera við skyrtu sem þið notið lítið eða komin með leið á. Hægt að gera við allt gallefni...




Byrjar á því að rúlla upp gallaskyrtunni og vefja gúmmí teygjum í kringum. Gerir þetta við alla skyrtuna smá saman en passaðu þig að krumpa saman litla hluti í einu annars fer klór í of stóran hluta af skyrtunni.


 Skyrtan á að líta svona út eftir að þú ert búin að vefja,krumpa og festa teygjur á hana.



Hellir hreinum klór í plastílát eða bala og leggur skyrtuna útí. Efa klórin nær ekki upp yfir skyrtuna þá læturu hana liggja í korter á hvorri hlið. Skyrtan má liggja í 15-20 minutur í klórinum.


 Þegar skyrtan hefur legið nógu lengi skolaru hana með vatni. Best að skola í vaskinum eða baðinu. Síðan hendiru henni í þurrkara í sirka 20 minutur eða þangað til hún þornar.





Aftaná skyrtuna 


X

Vanadísin

''WWW.HONESTLYWTF.COM''

4 comments:

  1. Hún er fullkomin! Miklu flottari en á WTF.

    ReplyDelete
  2. Sjúklega töff, sá þetta einmitt á honestlywtf og ætla að prófa!

    ReplyDelete